Áfram á vörulýsingu
1 af 1

Önnur tækniþjónusta

Önnur tækniþjónusta

Allar viðgerðir eru með skoðunargjald sem fellur niður ef þú ákveður að halda áfram með viðgerð eða uppfærslu. Við ráðfærum þér ef það er þess virði að halda áfram með viðgerð eða uppfærslu.

Við greinum vandamálið út frá upplýsingum frá þér og okkar yfirferð.

Hægt er að skoða verðlista og nánari lýsingu neðst í textanum.

Skoðunargjald:
4,990kr.


Þjónustan okkar:

1. Bókar tíma: 

Þú finnur þér tíma sem hentar þér, út frá þeim dögum og tímum sem við bjóðum upp á að koma með raftækið. Best er að senda á okkur fyrirspurn með raftækið sem er bilað áður en það er pantað tíma.

2. Greining: 

Við byrjum alltaf á að greina vandamálið út frá upplýsingum sem viðskiptavinur gefur okkur upp.

3. Við höfum samband:

Við ræðum alltaf fyrst við viðskiptavin um hvað þarf að gera, kostnað og tímann sem það tekur til þess að klára verkið. Ef það þarf að panta íhlut í raftækið getur viðgerðin tekið lengri tíma. Allar upplýsingar eru veittar þegar við höfum samband í lok greiningar.

4. Viðgerð:

Við gefum okkur 3 virka daga til þess að klára hverja og eina viðgerð. Ef viðgerðin tekur lengri tíma verður haft samband. Viðgerð á raftækjum öðrum en tölvu getur tíminn lengst ef það þarf að panta íhluti erlendis frá.

5. Yfirferð:  

Við förum yfir það sem var gert í sambandi við raftækið.


Viðgerðir og aðstoð:

  • Símaviðgerðir
  • Sjónvarpsviðgerðir
  • Miner viðgerðir
  • Önnur raftæki
  • Rykhreinsun
  • Almenn hjálp

Hægt er að skoða verðlista og nánari lýsingu á viðgerðum hér
: Verðlisti
Skoða allar upplýsingar